..í tilefni 5 mánađa bloggleysisafmćlis:)
Ég verð að byrja á því að óska sjálfri mér til hamingju með að vera lélegasti bloggari í heimi. Það eru næstum því nákvæmlega 5 mánuðir síðan ég bloggaði síðast.
Á þessum 5 mánuðum hefur samt ýmislegt gert. Til að mynda hef ég gert þetta:
-Byrjað að vinna á Leikskóla
-Skemmt mér vel við að vinna á leikskóla
-Lært að elska krúttlegu krakkana á leikskólanum
-Lært að halda aftur af mér öskrum á þá krakka sem eru hvað erfiðastir á leikskólanum
-Bætt þar af leiðandi smá þolinmæði við hjá mér
-Farið 2 sinnum til Siglufjarðar (það er oftar en um ævina)
-Aukið áhuga minn á fótbolta
-Haldið Jól
-Farið til New York með móður minni að heimsækja systur mína
-Skemmt mér nokkrum sinnum með vinum og vandamönnum
-Saknað vina og vandamanna (Brynja og Bryndís takið þetta til ykkar)
-Saknað systur
-Eignast barn (djók)
-Hætt að vinna á leikskólanum
-Byrjað að vinna á nýjum stað
-Stundað ræktina meira en áður
Þetta er svona það sem vert er að minnast. Það sem er framundan er hinsvegar bara sumarið, sumarið, sumarið!
En þá...
-..kemur Bryndís heim
-..kemur Brynja heim
-..kemur María systir heim
-..fer ég að vinna í bestu vinnu í heimi
-..verður gott veður
-..EYJAR
-..sól, sól, sól!
-..endalaust áhyggjulaust líf, fleiri Blómafélagshittingar og tan.
Lífið fer að verða þunglyndislaust og skemmtilegt. Ekki að það hafi verið slæmt samt. Það hlýtur samt að vera staðreynd að maður er glaðari þegar veðrið er betra?
En nú er Sandar komin að sækja mig svo ég verð að þjóta, skal reyna að blogga áður en árið verður búið. ;)
Luv Helga Lóa
Lífiđ búiđ?
Mig langar svo að blogga eitthvað skemmtilegt. Hvað varð um hæfileikana - ég veit ég er alltaf að væla um þetta en ég skil þetta ekki einu sinni var ég fyndin og sniðug og bloggaði um skólann og skólafélagana og blómafélagið og hittingana þar og ljóðastríðið í skólanum, fyndnu konuna á Hressó og fat doll dúkkuna og klámbúðir og þegar ég bakaði einu sinni piparkökur, já einu sinni bakaði ég piparkökur!
Ég held að ég hafi fundið ástæðuna. Ég er ekki að gera neitt í lífinu og þar af leiðandi hef ég ekkert frá neinu að segja. Það sem er að frétta af mér er það að ég er bara að sækja um vinnur hér og þar og fara í viðtöl og þetta gerist allt svo hægt. Svo ég er bara að mygla heima hjá mér milli þess sem ég fer á Q bar um helgar. Hvert er líf mitt að fara?
a) í súginn?
b) á glæ?
Ég hef ekkert farið í klámbúðir nýlega svo ég get ekki deilt sögum af því, ég er ekki búin að baka piparkökur og ég er ekki í skóla. Blómafélagið hefur ekki hisst í alltoflangan tíma og ég hef ekki farið á Hressó síðan ég var babydoll. EN ég er hinsvegar búin að skreyta aðeins íbúðina! Fæ ég ekki prik fyrir það?
Svo ef ykkur langar að koma í jólakaffi þá eruð þið alltaf velkomin, þeas. þið sem ég þekki!
Þessvegna hef ég ekki frá neinu merkilegu að segja. Ég ætla að láta fylgja með eitt ljóð sem Ásdís samdi einu sinni um Rölla og Krilla:
Krilli flexar flottar tennur
finna má hvar blóðið rennur
niður í litla mjóa ritskoðað
hann starir uppí himinn.
Röggi vonar að Krilla batni
hann baðar hann uppúr vatni
svo fallega hann raular og
hvort hann geri fleira með.
Snilld! Gleðileg Jól!
JólaLóa
Jáááá fínt, já sćll!!
..ég fékk mér aðeins í aðra tána með nokkrum vel völdum aðilum í gærkvöldi. Við byrjuðum hér hjá mér. Ég og Sara byrjuðum reyndar frekar snemma. Vandræðalegt. Bjuggumst við gestum hingað kl. 20 en fyrstu gestir komu kl 21. Dónar! En já það var drukkið og hlegið og rosa gaman. Svo var haldið í bæinn. Á Q-ið auðvitað. Þar var mikil gleði og skemmtilegt. Alltaf gaman að hitta Tyrfing.
Það var svo ákveðið að halda í "eftirpartý" heim til mín. Ég byrja á því að ætla að fara í tölvuna en finn hana hvergi. Leitaði án gríns útum allt! En það er þannig með mig að ég set stundum hluti sem mér þykir vænt um á mjög og þá meina ég MJÖG vísa staði. Íris var ekki parsátt með ástandið á mér, ég var að sturlast afþví ég hélt að einhver (mjög heimskulegt) hefði stolið tölvunni. En viti menn... ég fann hana svo í HNÍFAPARASKÚFFUNNI?! Gerir maður þetta bara?
Í kvöld ætla ég að fara í heimsókn til Jónu systur hennar mömmu og borða og hanga. Það verður eflaust næs. Svo langar mig að kíkja í bæinn. Verður ábyggilega miiiiikið af fólki útaf airwaves - en ég fékk einmitt ekki miða á airwaves... en mig langaði heldur ekkert. (hver nennir að lesa þetta ömurlega blogg)!
Ég fór einmitt til miðils í gær. Hún sagði að ég væri löt, óskipulögð og stjórnsöm. Humm... séns á að vera bara aumingi eða? Nei ok hún sagði reyndar að ég hefði fullt af hæfileikum! Það vita það nú allir!
Ég elska 2 lög.
Bubbly og Vegurinn til glötunar
Búiđ fyrir mig?
Skólinn er að drepa mig þessa dagana. Ritgerðarskrif, heimildaverkefni og fyrirlestrar! Djöfullinn! Ég hef ekki tíma fyrir þetta allt saman.
Nýliðin helgi var ágæt. Á föstudaginn leigðum við Bryndís myndina Perfect Stranger. Maðurinn í vídjóleigunni mældi eindregið með henni. Leiðrétti fyrir okkur þann misskilning að myndin væri hrollvekja. Spennumynd, spennumynd... we got it! Svo fórum við bara og fengum okkur kvesadillas. HAHAHA.
Á laugardaginn gerði ég næstum ekkert. Ég horfði á L word og dró Kristján með mér í Kringluna. Mér fannst frekar leiðinlegt með honum þar enda var hann enganvegin að nenna að vera þarna. Takk samt Krilli fyrir að hafa nennt með mér! Um kvöldið var svo hittingur hjá Dólgvaldi. En hann og María voru einmitt að fá sér pínulítinn hund - til hamingju! Ég og hundurinn náðum vel saman. Kvöldið endaði svo í einhverju rugli í bænum. Búið fyrir mig.
Ég er að hlusta á Skítamóral! Vandró?
Ég er búin glata öllum blogghæfileikum, ef þeir voru þá einhverntíma til staðar! Jú vá hvað er ég að segja þeir voru sko aldeilis til staðar! Hafiði ekki örugglega lesið www.folk.is/helgaloa ? Góð afþreying!
Farin að læra
Kv. Bindindiskonan
Allt ađ gerast?
Helgin sem er framundan verður vonandi skemmtileg. Ég, sem ætlaði ekki að drekka aftur í lífi mínu eftir dólginn í mér síðasta laugardag hef ákveðið að standa við orð mín og vera edrú!
...djók.
Það trúði mér ábyggilega enginn þarna! Á morgun, fimmtudag, tæknilega séð samt í dag! Þá sé ég fram á fimmtudagsgleði(drykkju). Íris lilli hefur tekið það verkefni að sér að sjá til þess að ég skemmti mér! Vona að það sé eitthvað gott plan. Íris - til í Q ?
Föstudagurinn. Þá hef ég ákeðið að taka að mér það skemmtilega verkefni að hafa "reunion". Fyrir stelpurnar úr gamla góða 10. SG. Það verður eflaust áhugavert og skemmtilegt og endar vonandi í skemmtilegri bæjarferð. Heppinn sá sem fer með mér í bæinn! Alltaf svo gaman með mér í bænum! Ég er aldrei útum allt. Eða taumlaus eins og BrylliLilli orðar það. Ætli það sé ekki best að ég fari bara að fara ein í bæinn?
Á laugardaginn er svo fjölskylduboð sem ég er MJÖG spennt að fara í - mjög langt síðan ég hef hitt alla þessa elskulegu ættingja mína sem ég þekki einmitt rosalega vel. Hmm..
Það kvöld endar svo vonandi í blómafélags (e. flowergroup) hittingi. Luv á afganginn maður! Kristján mundu eftir planinu!
Þessi vika er annars búin að vera fljót að líða. Búið að vera svo mikið að gera. Alltaf í skólanum maður. Alltaf að læra! (hvít lygi?). Ég komst að því á mánudaginn að ég gerði þvílík reginmistök með því að klippa á mig þennann topp. Mér voru sýnd vafasöm vídjó af mér í 10. bekk - bæði fyrir og eftir toppinn. Ég verð að segja að ég var mun skárri án hans. Ég var (eins og sumir vilja meina) alveg eins og Ronja Ræningja eftir toppaklippin og svertuna í hárinu. God forbid! Ég ætla í framhaldi af að hafa séð þetta hræðilega vídjó að safna toppinum í burtu! Ég meina ég er nú búin að vera með hann í 5 ár. Komið gott.
Skilaboð til Brynju og Ásdísar: Ekki byrja að tala of mikla dönsku og passið ykkur á því að tala ekki ensku með dönskum hreim í framtíðinni. Og Ásdís passaðu þig á Sille - hún er klikkuð!!! Ég er farin að hræðast um líf þitt þarna! Brynja - farðu að höstla!!!!!!!
Skilaboð til Maríu sys': Við mamma ætlum að koma til þín í Janúar gamla, eins gott að þú verðir búin að finna eitthvað snilldar plan fyrir okkur til að gera :D Aftur í sex and the city?? neeeeeeei? Hey svo bið ég bara að heilsa Natalie Portman!
Jæja fólk,
Verið góð við hvort annað!
Kv. Hellie Bjellie Lellie?
VALLIMAGG 20 ÁRA!! :D
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ VALLIMAGG!!!!
ÉG VEIT EKKI SÍMANÚMER TIL AÐ SENDA ÞÉR SMS EÐA E-MAIL TIL AÐ SENDA ÞÉR MAIL!! ÞANNIG ÉG GERI HÉR FÆRSLU EINUNGIS TIL HEIÐURS ÞÉR! VILDI AÐ ÉG GÆTI KNÚSAÐ ÞIG!!
LUV OG SAKNA ÞÍN:*
Bryndís Fulli Dólgur
...nú er ekkert svona lengur - Bryndís bara alltaf á æfingum og eitthvað...!
Lífiđ
Jæja þá er skólinn byrjaður. Mér líst frekar vel á þetta bara. Frekar mikið námsefni. Mest á ensku - sem er svolítið slæmt því orðaforði minn í ensku er töluvert minni en í íslensku. Eðlilega. Þetta er eitthvað sem lærist bara vonandi.
Ég fór í nýnemaferð stjórmálafræðinema á föstudaginn. Mæting og drykkja byrjaði klukkan 16:30. Svo var haldið til Þorlákshafnar þar sem henni var haldið áfram (drykkjunni þá). Og þar var bara drukkið og haft skemmtilegt þangað til um klukkan 23 en þá var haldið í bæinn. Ég var í bænum til kl 6. Ábyggilega eitt lengsta gleðidrykkjakvöld sem ég veit um (fyrir utan Fuerte og Eyjar). Snilld.
Það er þó lítið frásögufærandi af mér að frétta. Ég sakna þeirra vina sem yfirgáfu landið mjög mikið.
Vá ég er alveg tóm. Sorry hvað þetta er leiðinlegt blogg.
M16
En hér er einmitt samtal við einn skítugan tyrkja sem addaði mér á msn áðan!
m16 says: (11:13:31 PM)
ı sho w
m16 says: (11:13:36 PM)
sexy show ok
helga lóa :[ says: (11:13:54 PM)
hver í fokkanum ert þú ?
m16 says: (11:14:09 PM)
where are you live
helga lóa :[ says: (11:14:30 PM)
i live in iceland
helga lóa :[ says: (11:14:33 PM)
what about you ?
helga lóa :[ says: (11:14:38 PM)
who are you?
m16 says: (11:14:53 PM)
Turkey in Marmaris
m16 says: (11:14:58 PM)
ım Erol
m16 says: (11:15:15 PM)
camera pls
helga lóa :[ says: (11:15:22 PM)
no
m16 says: (11:15:30 PM)
why
m16 says: (11:15:54 PM)
ı dick show
m16 says: (11:15:54 PM)
ok
m16 says: (11:16:20 PM)
u tits show
Jesús minn almáttugur (svo ég brjóti aðeins eitt boðorðanna og leggji nafn drottins guðs míns við hégóma - vona að mér verði fyrirgefið). Hvað vakir fyrir þessum manni.
Ég er svo orðlaus núna að ég get ekki haft þetta lengra. Það er svosum ekkert að frétta - skólinn er byrjaður. Fínt.
Ferđar akvél
Nei ég var bara að pæla...
Gærkvöldið var skrautlegt. Loksins komið closure á sumarið. Nú tekur alvaran við. Á mánudaginn nánar tiltekið. Það verður skemmtilegt.
Ég datt á hnéð í gær/morgun/nótt eftir allsvakalegt rallý. Stelpurnar (Lana, Klara og Birna Rún) voru komnar svo langt á undan mér - en ferðinni var einmitt heitið á select. Ég ætlaði að ná þeim og spretti yfir einhvern hól. Það endaði svo að ég datt og meiddist illa, mjög illa (Sandra það ER vont). Nú á ég erfitt með að beygja löppina. Er samt að vinna í því. Batakveðjur eru vel þegnar. Nei ok djók þetta er ekki svo vont.
Við Klara vöknuðum svo í morgun. Og ég fór að lesa e-mail sem móðir mín góð hafði sent mér það er svona:
Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og þar var kona á
splunkunýjum BMW. Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum
og var á fullu að sminka sig með meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á
mína akrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna...
Svo hélt það eitthvað áfram en var alls ekki svo skemmtilegt þannig ég nennti ekki að hafa það allt í blogginu en ég stoppaði þarna og fór mjög mikið að hugsa afhverju sá sem skrifaði e-mailið hafði ekki bara skrifað BÍLL í staðinn fyrir ferðar akvél... Klara skildi það ekki heldur. En svo föttuðum við það. Alls ekki eins fyndið að segja frá þessu og þetta var þegar þetta gerðist - ég ætti eiginlega að sleppa þessari sögu - en ég eyddi svo mikilum tíma að skrifa þetta að ég ætla ekki að sleppa henni...
Ég er ekki svo hress að svo stöddu. Allir vinir mínir eru að fara til útlanda. Hinna ýmsu útlanda. Spánar, Danmerkur og Englands. Afhverju getur fólk ekki bara verið heima hjá sér, eins og ég?
Kv. Barnið
